Toyota RAV4 · XA50 · 2019–2025

Hljóðpakkar fyrir Toyota RAV4 (2019–2025)

Toyota RAV4 er víða á íslenskum vegum og upprunalega hljóðkerfið í honum er einfalt. Við höfum sett saman þrjá pakka fyrir RAV4 af árgerðum 2019–2025 með grunnhljóðkerfi (ekki JBL). Hátalararnir passa á upprunalegu staðina og tengikaplar (harness) tengjast beint við tengi bílsins, svo ekki þarf að klippa neina víra. Verðið er heildarpakki, vörur og vinna, og ísetningin fer fram á verkstæðinu okkar á Suðurhellu 10 í Hafnarfirði.

Ertu ekki viss um hvaða hljóðkerfi er í bílnum þínum? Sendu okkur bílnúmerið og við athugum það áður en þú bókar.

Phoenix Gold ZDST6CS · Phoenix Gold ZDST6CX
Pakki 1

Pakki 1: Hátalarar

Heildarpakki, vörur og vinna: 118.990 kr.

Pakki með 6 hátölurum: 2 tweeters og 2 midbass í framhurðum og 2 coaxial hátalarar í afturhurðum, frá Phoenix Gold og hannaðir fyrir Toyota. Þú heyrir skýrari söng og tal, meiri smáatriði í diskanti og fyllri midbass, án þess að breyta neinu öðru í bílnum. Upprunalega tækið, hnapparnir í stýrinu og tenging við símann virka eins og áður.

Hentar þeim sem vilja skýrari hljóm fyrir hóflegt verð.

  • Phoenix Gold ZDST6CS í framhurðir
  • Phoenix Gold ZDST6CX í afturhurðir
  • Áætlaður ísetningartími: hálfur dagur
Phoenix Gold ZXM400.4ISO
Pakki 2

Pakki 2: Hátalarar og magnari

Heildarpakki, vörur og vinna: 213.990 kr.

Sömu 6 hátalarar og í pakka 1, ásamt litlum 4 rása magnara frá Phoenix Gold sem fer undir framsæti. Magnarinn tengist bílnum með tengikapli (harness) í gegnum High Level inngang, svo upprunalega tækið stýrir öllu eins og áður. Hátalararnir fá meira afl og hljómurinn helst hreinn þegar hækkað er, líka á þjóðvegahraða þegar veg- og vindhljóð er meira.

Hentar þeim sem hlusta oft hátt eða keyra mikið á þjóðvegi.

  • Phoenix Gold ZDST6CS og ZDST6CX hátalarar
  • Phoenix Gold ZXM400.4ISO magnari með tengikapli fyrir Toyota
  • Áætlaður ísetningartími: einn dagur
Phoenix Gold ZDST6CS · Phoenix Gold ZDST6CX
Phoenix Gold ZDA4.8
Pakki 3

Pakki 3: DSP magnari og bassabox

Heildarpakki, vörur og vinna: 431.990 kr.

Sömu 6 hátalarar, DSP magnari frá Phoenix Gold og 8″ bassabox frá Audison með innbyggðum magnara. DSP magnarinn gerir okkur kleift að stilla hvern hátalara fyrir sig: tímastillingu (time alignment), tónjafnara og crossover. Þannig færist hljómurinn fram á mælaborðið fyrir framan þig, í stað þess að koma úr hurðunum. Bassaboxið er staðsett í skottinu og bætir við djúpum bassa sem 6,5″ hátalarar í hurðum ná ekki að skila. Bakkskynjarar og hljóðmerki bílsins heyrast áfram.

Hentar þeim sem vilja heildstætt kerfi með jöfnum hljómi og bassa.

  • Phoenix Gold ZDST6CS og ZDST6CX hátalarar
  • Phoenix Gold ZDA4.8 DSP magnari með tengiköplum fyrir Toyota
  • Audison Prima APBX 8 AS2 bassabox með innbyggðum magnara, tengt um Low Level inngang (RCA)
  • Grunnstillingar á DSP fylgja
  • Áætlaður ísetningartími: 1–2 dagar
Phoenix Gold ZDST6CS · Phoenix Gold ZDST6CXAudison Prima APBX 8 AS2

Valkostir

Hægt er að bæta við hvern pakka. Verð eru með vinnu.

DSP
AÍtarlegri DSP stillingar með mælingum þar sem þú situr
Á við: Pakki 3
Verð með vinnu 43.990 kr.
Phoenix Gold ZDAWCT
BÞráðlaus fjarstýring fyrir DSP magnara (Phoenix Gold ZDAWCT): hljóðstyrkur, bassi og val á inngangi
Á við: Pakki 3
Verð með vinnu 20.990 kr.
Paramat TitanCore
CHljóðeinangrun í framhurðir (Paramat TitanCore)
Á við: Allir pakkar
Verð með vinnu 73.990 kr.
Paramat TitanCore
DHljóðeinangrun í allar 4 hurðir (Paramat TitanCore)
Á við: Allir pakkar
Verð með vinnu 117.990 kr.
Audison Prima APBX 8 AS2
EBassabox: Audison Prima APBX 8 AS2 með innbyggðum magnara
Á við: Pakki 1 og 2
Verð með vinnu 143.990 kr.
Audison Prima APBX 10 DS
F10″ bassabox með eins rása Class D monoblock: Audison Prima APBX 10 DS og Phoenix Gold ZXM500.1i
Á við: Pakki 1 og 2
Verð með vinnu179.990 kr.
Phoenix Gold ZXM500.1i
F′10″ bassabox með eins rása Class D monoblock í stað 8″ bassaboxins
Á við: Pakki 3
Verð með vinnu+35.990 kr.

Af hverju hljóðeinangrun? Hurðin er hátalaraboxið. Þegar málmurinn titrar tapast midbass og skrölt heyrist. Einangrun í hurðum gefur þéttari bassa og minna veghljóð. Hurðarspjöldin eru hvort sem er tekin af þegar hátalararnir eru settir í og því er vinnan minni en ef einangrað er sér.

Í Paramat-reiknivélinni velur þú jeppa eða jeppling og þau svæði sem á að einangra.

Innifalið í ísetningu

  • 1Móttaka á Suðurhellu 10 og yfirferð á hljóðkerfi bílsins fyrir verk
  • 2Hurðarspjöld tekin af og sett á aftur, smellur yfirfarnar og skipt um þar sem á við
  • 3Tengikaplar (harness) sem tengjast beint við tengi bílsins, án þess að klippa víra; hægt að setja upprunalega kerfið aftur í
  • 4Prófun á öllum hátölurum, símtölum, bakkskynjurum og hljóðmerkjum bílsins
  • 5Stillingar á magnara og DSP eftir pakka
  • 6Myndir af verkinu, fyrir og eftir
  • 7Afhending þar sem við förum yfir kerfið með þér

Bókaðu tíma

Hringdu í 537 0500, sendu póst á info@hljodlausnir.is eða komdu við á Suðurhellu 10, 221 Hafnarfirði. Opið virka daga 10–17 og laugardaga 12–16.

Gott er að senda bílnúmer og árgerð með fyrirspurninni. Sumar vörur eru sérpantaðar og við staðfestum afhendingartíma þegar þú bókar.

Hljóðlausnir
Suðurhella 10, 221 Hafnarfjörður

Hátalarar og tengikaplar eru valdir eftir lista Phoenix Gold yfir bílgerðir. Við staðfestum að þeir passi með því að skoða bílinn við bókun.

Pakkarnir eiga við Toyota RAV4 2019–2025 (XA50) með grunnhljóðkerfi. Bílar með JBL kerfi og nýr RAV4 frá 2026 þurfa aðra lausn; hafðu samband og við förum yfir möguleikana.

Secret Link