Skilmálar

Þessi vefsíða er í eigu og rekin af Hljóðlausnum ehf., kt. 450521-1670, Brúarfljóti 2, 270 Mosfellsbær. VSK númer: 141063.

Aðgangur og notkun vefsíðunnar hljodlausnir.is  (vefverslun) er háð eftirfarandi skilmálum. Þegar farið er inn á vefsíðuna, skoðað eða lagt fram pöntun eru eftirfarandi skilmálar samþykktir.

Vinsamlegast lesið skilmálana vandlega, þeir innihalda mikilvægar upplýsingar. Ef spurningar vakna er hægt að hafa samband á netfangið info@hljodlausnir.is

Hljodlausnir.is áskilur sér rétt til að breyta, fjarlægja eða bæta við vefsíðuna og skilmála hennar án sérstakra tilkynninga. Skilmálar sem eru í gildi  þegar pöntun er gerð,  gilda um viðkomandi pöntun. Skilmálarnir skulu vera í samræmi við landslög Íslands, tilskipanir og reglur Evrópska Efnahagssvæðisins eftir því sem við á.

Hljodlausnir.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og að breyta verðum án fyrirvara eða hætta að bjóða upp á vörur fyrirvaralaust í sölu. 

Kaupskilmálar

Vörur í innkaupakörfu eru ekki fráteknar fyrr en pöntun hefur verið staðfest af hljodlausnir.is, staðfesting sendist á netfang sem gefið er upp í greiðsluferlinu. Þegar pöntun er afgreidd á vefsíðunni er kominn á bindandi samningur um kaup eftir að pöntun hefur staðfest og send á netfangið sem gefið var upp. Pantanir skráðar á föstudögum, laugardögum, sunnudögum eða öðrum helgidögum verða staðfestar eigi síðar en næsta virka dag.

Greiðslur

Greiðslu getur kaupandi innt af hendi í gegnum greiðslusíðu Valitor

Debet- eða kreditkorta greiðslur: Viðskiptavinir fá senda staðfestingu þegar greiðsla hefur borist og pöntun verður send.

Allir kredit- og debetkortakorthafar gangast undir skilmála kortaútgefanda. Ef útgefandi tiltekins kredit- eða debetkorts neitar að heimila greiðslu til hljodlausnir.is, berast þér skilaboð þar sem fram kemur að greiðsluna sé ekki hægt að framkvæma. hljodlausnir.is ber ekki ábyrgð á töfum eða synjun á því að vara sé afhent sé það rakið til synjunar á korti eða heimild.

Afhendingar

Hljodlausnir.is afgreiðir pantanir eins fljótt og auðið er. 

Allar pantanir sem berast og eru greiddar eru afhentar eftir þeim sendingarmáta sem er valinn af viðskiptavin. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.

Afhendingartími er 1-3 virkir dagar,

Ef afhendingu seinkar verulega eða í meira en 20 daga hefur þú heimild til að hætta við kaupin. Í slíku tilviki biðjum við þig að hafa samband við hljodlausnir.is

hljodlausnir.is ber enga ábyrgð á neinum töfum sem verða  á afhendingu pantana vegna utanaðkomandi atburða, eins og flóð, eldsvoða, vinnudeilur, verkföll, uppþot, óeirðir, opinberar aðgerðir eða aðra svipaða atburði.

Viðskiptavinir geta einnig valið að sækja pöntun sína að kostnaðarlausu í Brúarfljót 2, 270 Mosfellsbæ innan þess tímaramma sem gefin er upp. 

Vöruverð og upplýsingar

Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilur Hljóðlausnir ehf. sér þann rétt til að hætta við viðskipti ef rangt verð er gefið upp, eins eru allar upplýsingar og myndir af vörum birtar með fyrirvara.

Verð eru gefin upp í íslenskum krónum (ISK) á vefsíðunni og er vsk innifalinn. Verð geta breyst án fyrirvara og tilboð má afturkalla hvenær sem er.

Hljodlausnir.is getur tímabundið boðið uppá tilboðsverð eða afslætti, með eða án sérstakra kóða. Afslættir sem gefnir eru með kóða eru almennt eingöngu gildir einu sinni og þegar kóðinn er notaður verður hann óvirkur og því ekki lengur í gildi. Ekki er hægt að bæta við afslætti eftir að pöntun er staðfest, það þarf því að tryggja að allar slíkar upplýsingar séu skráðar inn áður en pöntun er staðfest og greidd. Hljodlausnir.is áskilur sér rétt til þess að afturkalla afslátt, tilboðsverð og kóða hvenær sem er.  

Skilafrestur, endurgreiðsluréttur & ábyrgð

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna og henni sé skilað  í óuppteknum og upprunalegum umbúðum. Sé vara innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Vörur sem hafa ekki innsigli fæst ekki skilað né skipt. Fresturinn tekur gildi þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd á kreditkort. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda. Samkvæmt lögum ber þér að gæta þess að varan sé í lagi á meðan hún er í þinni vörslu og berð ábyrgð á skemmdum meðan á flutningi stendur. Þegar varan er móttekin er gengið frá endurgreiðslu. Vara sem reynist gölluð er skipt út fyrir sömu vöru. Ekki er hægt að skipta vöru í aðra vöru.

Útsöluvörum fæst hvorki skipt né skilað.

Trúnaður & öryggi

Hljóðlausnir ehf. heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem viðskiptavinur gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Allar greiðslur í vefverslun Hljóðlausna eru öruggar og fara í gegnum örugga greiðslusíðu Valitor, öll gögn og upplýsingar eru trúnaðarmál. 

Meðferð persónuupplýsinga

Viðskiptavinir vefsíðu Hljóðlausna þurfa að gefa upp persónuupplýsingar, nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang þegar keyptar eru vörur á vefversluninni. Ef viðskiptavinur vill síðar að þessum upplýsingum sé eytt, munum við verða við þeirri ósk nema að það sé ekki hægt af bókhaldslegum eða lagalegum ástæðum. Þessar upplýsingar eru eingöngu aðgengilegar starfsmönnum Hljóðlausna og upplýsingarnar eru einungis notaðar til að afgreiða pantanir sem hafa verið gerðar og sinna málum er koma upp í tengslum við þær. Hljodlausnir.is leggur áherslu á að öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina sinna sé gætt. Meðferð og úrvinnsla allra persónuupplýsingar eru í samræmi við lög og reglur (persónuverndarlög). Áhersla er lögð á að vinnsla á persónugreinanlegum upplýsingum sé takmörkuð, að því marki að hægt sé að veita þá þjónustu sem óskað er eftir. Upplýsingar sem viðskiptavinur samþykkir að sóttar séu af þriðja aðila eru einungis afhentar í þeim tilgangi að veita viðskiptavinum þá þjónustu sem óskað er eftir.  

Þegar greiðsla fer fram í gegn um hljodlausnir.is eru greiðsluupplýsingar skráðar á öruggu vefsvæði Valitor sem tryggir að greiðsluupplýsingar þínar eru óaðgengilegar fyrir óviðkomandi.

Hljóðlausnir ehf. skuldbindur sig til að afhenda ekki, selja eða gefa upplýsingar sem þú lætur af hendi vegna viðskipta okkar aðgengilegar til þriðja aðila.

IP tala þín er skráð við greiðslu pöntunar. Þær upplýsingar ásamt persónuupplýsingum og upplýsingum um vörukaup gætu verið notaðar í tengslum við lögreglurannsókn vakni grunur um sviksemi eða misnotkun greiðslukorta.

Vefkökur

Vefkökur (cookies) frá fyrsta aðila eru notaðar á ýmsum hlutum vefsins og í ýmsum tilgangi. Þær geta t.d. verið notaðar til að fylgja slóð tiltekins notenda gegnum vefinn, vista stillingar sem hann hefur valið eða halda utan um hvaða vörur hann hefur séð. Hljodlausnir.is notar vefkökur til að greina umferð um vefsvæðið til að bæta upplifun notenda.

Vefkökur eru ekki tengdar við persónuupplýsingar, nema í þeim tilvikum sem nefnd eru hér að ofan. Persónuupplýsingar eru aldrei vistaðar í vefkökunum sjálfum. Persónuupplýsingar notenda eru aldrei afhentar þriðja aðila án samþykkis viðkomandi nema að undangengnum dómsúrskurði.

Vefkökur sem tilheyra þriðja aðila (Google og Facebook) eru notaðar á vefsíðu Hljóðlausna m.a. til þess greina notkun vefsvæðisins hvað varðar fjölda notenda og hegðun þeirra þar. Hægt er að nálgast upplýsingar um hvernig þessir aðilar nota vefkökur á vefsíðum þeirra.

Með því að halda áfram á vefsíðu Hljóðlausna samþykkir þú þessa skilmála.

Lög og varnarþing

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur netverslun Hljóðlausna á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

Aðrar upplýsingar 

Netfang: info@hljodlausnir.is

Heimilisfang: Brúarfljót 2, 270 Mosfellsbær 

Kt: 450521-1670

Sími: 537-0500