Aukahlutir og Tengi

Vöruröðun
Raða eftir
Raða eftir vöruflokki

Hér eru aukahlutir og tengi fyrir hljómtæki í bíl: allt sem þarf til að tengja magnara, hátalara og bassabox rétt. Í flokknum eru snúrukitt fyrir magnara, RCA snúrur, hátalaravír og straumvír, öryggjahús og öryggi og hátalarahringir fyrir ákveðna bíla.

Góð tenging skiptir máli fyrir hljómgæði og öryggi. Of grannur straumvír eða öryggi á röngum stað getur valdið vandræðum, svo veldu eftir straumþörf magnarans.

Ekki viss hvað þarf? Sendu okkur upplýsingar um bílinn og búnaðinn, eða komdu á Suðurhellu 10 í Hafnarfirði.

Hvaða aukahluti þarf ég?

Þegar þú setur magnara eða bassabox í bílinn þarf yfirleitt:

  • Snúrukitt með straumvír, jarðvír, öryggi og oft RCA og remote vír. Snúrukitt eru til í mismunandi þykktum, t.d. ACV WK-10 (10 mm², 8 AWG), ACV WK-20 (20 mm², 4 AWG) og ACV WK-35 (35 mm², 2 AWG), og frá Phoenix Gold upp í ZXK50 (50 mm², 0 AWG). Sjá snúrukitt.
  • RCA snúru ef merkið kemur úr útvarpi eða DSP með RCA útgöngum, t.d. Gladen Eco RCA 5,0 m. Sjá RCA snúrur.
  • Öryggi og öryggjahús nálægt rafgeyminum og deilibox ef fleiri en einn magnari er tengdur. Sjá öryggjahús og öryggi.

Hvernig vel ég þykkt á straumvír? Það fer eftir straumþörf magnarans og lengd vírsins frá rafgeymi. Stærri magnari þarf sverari vír. Framleiðendur gefa oft upp ráðlagt öryggi og vírstærð í handbók magnarans. Ef þú ert í vafa, spurðu okkur áður en þú kaupir; rangt valin stærð getur hitnað.

Hátalaravír og straumvír. Fyrir nýja hátalara eða magnara þarf oft nýjan hátalaravír, t.d. Connection hátalaravír í 14 og 18 AWG, og rauðan eða svartan straumvír í metravís. Sjá kapla.

Hátalarahringir fyrir ákveðna bíla. Eftirmarkaðshátalarar passa ekki alltaf beint í OEM festingar. Hátalarahringir (speaker rings) laga festinguna að bílnum, t.d. fyrir Toyota Land Cruiser 250/300, Kia/Hyundai, Skoda/VW og Honda/Mazda. Sjá hátalarahringi og hátalara.

Tenging við OEM útvarp. Ef OEM útvarpið hefur ekki RCA útganga þarf að breyta hátalaramerkinu áður en það fer í magnara, nema magnarinn sé með high-level inngangi. Sjá processors. Ef þú vilt líka stilla hljóminn er DSP magnari oft einfaldari leið.

Fjarstýringar fyrir magnara og DSP. Bassafjarstýringar og DSP fjarstýringar, t.d. Audison DRC og Mosconi RC MINI, eru í fjarstýringum og tengjum fyrir magnara.

Bakkmyndavélar eru líka hér undir, en hafa sinn eigin flokk: bakkmyndavélar.

Dæmi: hvað þarf í algeng verkefni

  • Nýir hátalarar í hurðir: hátalarahringir sem passa bílnum, hátalaravír ef þarf að leggja nýjan, og oft Paramat Nirvana Speaker Pad aftan við hátalarann. Sjá líka hljóðeinangrun.
  • Bassabox með innbyggðum magnara: snúrukitt í réttri þykkt, öryggi nálægt rafgeymi og merkjatenging, annaðhvort high-level úr OEM útvarpinu eða RCA.
  • 4 eða 5 rása magnari: sverara snúrukitt, RCA snúrur eða high-level tenging, hátalaravír að hverjum hátalara og mögulega deilibox ef fleiri en einn magnari er í kerfinu.

Ísetning. Rafmagnsvinna við magnara og bassabox er best í höndum fagmanns. Við sjáum um tengingar, öryggi og frágang á Suðurhellu 10.

Algengar spurningar um aukahluti og tengi

Hvað er í snúrukitti fyrir magnara?

Yfirleitt straumvír, jarðvír, öryggi með öryggjahúsi og oft RCA snúra og remote vír. Innihaldið er mismunandi eftir kittum og er talið upp á vörusíðu hvers kitts.

Hvaða þykkt af straumvír þarf ég?

Það fer eftir straumþörf magnarans og lengd vírsins. Stærri magnarar þurfa sverari vír, t.d. 20 mm² (4 AWG) eða 35 mm² (2 AWG) frekar en 10 mm² (8 AWG). Fylgdu ráðleggingum í handbók magnarans eða spurðu okkur.

Þarf ég RCA snúru ef ég tengi við OEM útvarp?

Ekki alltaf. Ef magnarinn eða DSP magnarinn er með high-level inngangi tekur hann merkið beint af hátalaravírunum. RCA snúru þarf þegar merkið kemur úr tæki með RCA útgöngum.

Hvað eru hátalarahringir?

Hátalarahringir eru millistykki sem gera eftirmarkaðshátölurum kleift að passa í OEM festingar í hurðum. Þeir eru sniðnir að ákveðnum bílategundum og stærðum, t.d. 165 mm.

Getið þið tengt magnarann fyrir mig?

Já. Við sjáum um ísetningu og tengingar á Suðurhellu 10, 221 Hafnarfirði, opið virka daga 10 til 17 og laugardaga 12 til 16. Sími 537 0500, info@hljodlausnir.is.

Aukahlutir og Tengi
GAS MAD A2-600.1DFL - eins ...
GAS MAD A2-1200.1DFL - eins...
GAS MAD B2-212V - 2x 12" ba...
GAS MAX ASB1-8 bassabox - 1...
GAS MAX ASB1-10 bassabox - ...
GAS MAX D2-610BT - 10 rása ...
GAS MAX B1-16VW4 Direct Fit...
GAS MAX B1-38 - 3x8" bassab...
GAS MAX B1-28 - 2x8" slim f...
GAS MAX B1-18PO2 Direct Fit...
GAS MAX B1-18E - 8" Bassabo...
GAS MAX B1-16VW2 Direct Fit...
GAS MAX B1-212 - 2x12" 3400...
GAS CMP S3-12D1 - 12" SPL k...
Karfa
Secret Link

Vöruröðun

Raða eftir
Raða eftir vöruflokki